Fyrsta skemmtiferðaskip sumarins er væntanlegt til Akureyrar á morgun, laugardag. Skipið, Le Dumont Durville, lagðist við bryggjuna í Grímsey í hádeginu í dag og siglir svo til Akureyrarhafnar á morgun.
Skipið er tæp 10.000 tonn og með því eru um 200 farþegar og 100 manna áhöfn. Von er á sjötta tug skemmtiferðaskipa til Akureyrar í sumar og með 25-30 þúsund farþega.