Fólki fækkar áfram í einangrun og í sóttkví á Norðurlandi eystra og eru nú fjórir með virkt Covid-19 smit í landsfjórðungnum. Þá eru þrír í sóttkví. Alls greindust 12 innanlands með kórónuveirusmit í gær og voru þeir allir í sóttkví.
Akureyrarbær hefur þegar gripið til ýmissa aðgerða, meðal annars með áherslu á hóflegar gjaldskrár og frestun innheimtu gatnagerðargjalda segir í bókun bæjarráðs en þrjú félög, VR, LÍV og RSÍ sendu Akureyrarbæ og fleiri sveitarfélögum í landinu erindi vegna gjaldskrárhækkana í tengslum við kjarasamninga. Einnig var óskað eftir upplýsingum um hvað þau væru tilbúinn að leggja af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður.
Minningamálþing í tilefni 100 ára fæðingarafmælis Ara Brynjólfssonar eðlisfræðings fer fram í Menntaskólanum á Akureyri á morgun sunnudaginn 27. september kl. 13.30 -16.00.
Heilbrigðisnefnd Eyjafjarðar hefur samþykkt að hætta álagningu dagsekta sem lagaðar voru á fyrirtækið Auto ehf Setbergi á Svalbarðsstönd. Fyrirtækið óskað eftir að álagðar dagsektir verði felldar niður og að frekari dagsektir verði ekki lagðar á vegna málsins. Félagið vísar til þess að unnið hafi verið að úrbótum á athafnasvæðinu í samræmi við fyrirliggjandi verkáætlun.
Rannsókn á fjarheilbrigðisþjónustu fyrir fólk með sykursýki 2, sem unnin var á Sjúkrahúsinu á Akureyri, sýnir að tæknin getur bætt aðgengi og aukið öryggistilfinningu sjúklinga. Á fimm mánaða tímabili fækkaði komum á göngudeild úr ellefu í tvær og símtölum til hjúkrunarfræðinga úr fjörtíu og sex í ellefu. Niðurstöðurnar voru kynntar á Vísindadegi SAk í gær og sagt er frá þeim á sak.is .
Níu frumkvöðlateymi í háskólahraðlinum Snjallræði halda til Húsavíkur um helgina þar sem önnur vinnustofa hraðalsins fer fram samhliða HönnunarÞingi. Þetta er annað árið í röð sem Snjallræði tengir vinnustofu sína við þingið og segir Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri Háskólans á Akureyri, reynsluna frá síðasta ári hafa verið það góða að litla umræðu hafi þurft um hvort hópurinn sneri aftur.
Á Akureyri eru starfandi 7 grunnskólar og þar til viðbótar eru skólar í Hrísey og Grímsey að ógleymdum gullmola Akureyrar, Hlíðarskóla. Í þessum skólum er sífellt verið að vinna að verkefnum sem efla nemendur í alls kyns hæfni. Þeir nemendur sem eru góðir í stærðfræði fá víða tækifæri til að aðstoða aðra nemendur og verða þá um leið betri í stærðfræði. Þegar nemendur aðstoða hvern annan þá verða þeir ekki bara betri í viðkomandi fagi heldur efla þeir margt annað sem erfitt er að mæla, svo sem samvinnu, forystuhlutverk, umhyggju, umburðarlyndi og fleira.
„Ég er bjartsýnn að það náist fín lending í þessu máli sem aðilar geti sætt sig við,“ segir Arnar Friðriksson framkvæmdastjóri Norlandair. Félagið átti lægra boðið af tveimur í áætlunarflug frá Akureyri til Vopnafjarðar og Þórshafnar sem boðið var út á liðnu sumri. Einnig var flug milli Akureyrar og Grímseyjar boðið út í sama pakka.