Bæjarráð hafnar beiðni Fallorku um að reisa virkjun í Glerá

Bæjarráð Akureyrar telur ekki ástæðu til að ráðast í virkjun í Glerá að svo stöddu og samþykkti á fundi sínum í morgun, með 3 atkvæðum, gegn atkvæði Ólafs Jónssonar D-lista, að hafna erindi Fallorku ehf. Fyrirtækið hafði óskað eftir að Akureyrarbær tæki afstöðu til breytingar á aðal- og deiliskipulagi Glerárdals og hefji þá vinnu með það fyrir augum að Fallorku verði heimilað að reisa þar um 2,0 MW vatnsaflsvirkjun.  

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista óskar bókaði bókað á fundi bæjarráðs í morgun::

Á fundi bæjarráðs þann 17. febrúar 2011 fagnaði áheyrnarfulltrúi VG hugmyndum um virkjun í Glerá. Við bæjarbúar eigum orkulind í bakgarðinum og það samræmist hugmyndum um sjálfbærni samfélags að virkja eigin orku og taka þannig ábyrgð á rafmagnsnotkun okkar. Það teljum við rök í umræðunni en vissulega ekki þau einu. Ef sérstæð náttúra Glerárgils er í húfi hefur hún vissulega jafnmikið vægi í umræðunni og skal ávallt njóta vafans séu umhverfisáhrif neikvæð eða jafnvel óljós.

Þær rýru upplýsingar sem kjörnir fulltrúar hafa í höndunum varðandi áhrif virkjunarinnar á vatnsbúskap Glerár, útfærslu mannvirkja og um náttúrufar á svæðinu eru engan veginn fullnægjandi til þess að hægt sé að taka svo stóra ákvörðun sem hér liggur fyrir. Þá er algjört grundvallaratriði að fyrir liggi hvernig umhverfismati skuli háttað á svæðinu sem um ræðir.

Aðalinntak fyrrnefndrar bókunnar frá 17. febrúar sl. var ákall eftir því að hugað sé að skipulagi Glerárdals alls sem útivistarsvæðis og náttúruperlu. Vinstri hreyfingin grænt framboð kallar hér eftir því að stefnumótun um Glerárdal allan liggi fyrir þótt deiliskipulag sé hugsanlega ekki tilbúið. Einnig að lagðar verði fram formlegar tillögur um það hvernig aðalskipulagi verði breytt þannig að þar komi fram skýr stefnumótun um Glerárdal og útfærslu raflínunnar sem fyrirhuguð er frá Akureyri að Kröflu.

Hermann Jón Tómasson S-lista og Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista óskuðu bókað:

Við teljum eðlilegt að þetta mál fái umræðu og afgreiðslu í fagnefndum en ekki aðeins í bæjarráði.  Í viðkvæmu máli sem þessu er þarft að vanda málsmeðferðina og tryggja að mismunandi sjónarmið og rökstuðningur fyrir þeim fái nauðsynlega umræðu innan stjórnkerfis bæjarins áður en ákvörðun er tekin um afgreiðslu erindisins.  Þess vegna lýsum við óánægju okkar með málsmeðferðina.

Ólafur Jónsson D-lista óskaði bókað:

Ég tel virkjun í efri hluta Glerár vænlegan kost og tel eðlilegt í ljósi nýrra arðsemisútreikninga Fallorku ehf að þessi virkjunarkostur verði skoðaður frekar.  Ég lýsi því yfir ákveðnum vonbrigðum mínum að málið verði ekki skoðað frekar af hálfu bæjarins.

Nýjast