Niðurstöður þjónustukönnunar sem velferðarsvið Akureyrarbæjar lét framkvæma meðal eldri borgara á Akureyri sem nýta stuðningsþjónustu Akureyrarbæjar eru afar jákvæðar. Þátttaka var góð, eða um 70%, en tæplega 60% þeirra sem svöruðu voru 80 ára eða eldri. Markmið könnunarinnar var að fá fram upplifun og viðhorf notenda til þjónustunnar og kanna hvort hún mætti þörfum og væntingum þeirra.
Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.
Ákveðið var að ráðast í könnunina í kjölfar Gallup-könnunar þar sem ánægja með þjónustu við eldri borgara á Akureyri mældist ekki ásættanleg. Þótti mikilvægt að afla frekari upplýsinga beint frá notendum þjónustunnar og fá skýrari mynd af því hvað væri að ganga vel og hvort einhverjir þættir kölluðu á frekari skoðun eða úrbætur.
Alls sögðust 98% þátttakenda hafa gagn af stuðningnum og 99% sögðu stuðninginn bæta lífsgæði sín. Þá upplifðu 99% vingjarnlegt viðmót starfsfólks og 98% sögðust upplifa að á þau væri hlustað. Þegar á heildina er litið sögðust 99% vera ánægð með stuðningsþjónustuna, og þar af mældust 83% mjög ánægð.
79% vilja helst búa heima
Þá var spurt hvar fólk myndi helst vilja búa ef færni þess versnaði. Niðurstöðurnar sýna að 79% myndu vilja búa áfram heima með viðeigandi stuðningi, en 21% myndu frekar vilja flytja á hjúkrunarheimili.
Könnunin tók jafnframt til félagslegrar stöðu eldri borgara, með sérstakri áherslu á einmanaleika og félagslega einangrun. Um 27% þátttakenda sögðust upplifa félagslega einangrun. Þær upplýsingar geta verið mikilvægar við áframhaldandi skipulagningu og þróun þjónustu og úrræða sem stuðla að félagslegri virkni, þátttöku og auknum lífsgæðum eldri borgara.