Farið var yfir hugmyndirnar og rætt um næstu skref á fundi stjórnar Akureyrarstofu í vikunni. Þar kom fram að stefnt sé að
því að funda með aðilum úr atvinnulífinu um stöðuna og hvernig hún horfir við á svæðinu. Jafnframt er ætlunin
að setja af stað vinnu sem felur í sér að greina ný og vannýtt tækifæri og mögulega sérstöðu svæðisins sem
gæti fært athafnalífinu aukna möguleika. Sjónarhorn hópsins væri þannig annað en sjónarhorn almannaheillanefndarinnar sem þegar
hefur unnið gott starf í að kortleggja leiðir og úrræði sem eru í boði fyrir einstaklinga ef á reynir, eins og segir í bókun
frá fundi stjórnar Akureyrarstofu. Þá var formanni og framkvæmdastjóra falið að halda áfram undirbúningi málsins í samvinnu
við Atvinnuþróunarfélagið.