Heimilið er á fallegum stað en mjög einangrað og íbúar einangraðir vegna staðsetningar heimilisins. Framkvæmdaráði var sent erindi
sl. sumar með ósk um að komið verði á almenningssamgöngum í Kjarnalund.
Félagsmálaráð tekur undir mikilvægi þess að almenningssamgöngur komist á í Kjarnalund og beinir til því
framkvæmdaráðs að koma þessu á við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
Framkvæmdastjóri ÖA greindi einnig frá þróun í mannahaldi á fundi félagsmálaráðs. Með fjölgun hjúkrunarrýma og þverrandi heilsu íbúa ÖA hefur álag á starfsfólk aukist. Hjúkrunarrýmum var fjölgað um 39 á síðasta ári, við þessar breytingar fékkst aukning í mannahaldi um 3,6 stöðugildi síðastliðið sumar og 2,8 stöðugildi til bráðabirgða um áramót. Sýnt er að þessi bráðabirgðaaukning þarf að vera til frambúðar vegna aukins álags á starfsfólk.