Með þessu skrefi vill EFLA treysta böndin við viðskiptavini hvarvetna á Norðvestur-, Norður- og Norðausturlandi, efla þjónustuna jafnt
við þéttbýli sem dreifbýli í landshlutanum og bjóða viðskiptavinum nýja möguleika. Áherslur í ráðgjöf
EFLU fyrir norðan munu m.a. lúta að umhverfismálum, jarðtækni, umferðar- og samgöngumálum, skipulagsmálum, viðhaldi mannvirkja og
fasteignaumssjón, auk þess sem EFLA hyggst taka virkan þátt í framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á norðanverðu landinu, ekki
síst tengdri orku, iðnaði og sjávarútvegi. Með efldri starfsemi fyrir norðan sækist EFLA eftir að styrkja samfélagið, og stuðla að
aukinni þekkingarmyndun og þróunarstarfi.
EFLA hefur um langt skeið unnið að fjölmörgum verkefnum fyrir sveitarfélög og fyrirtæki á ýmsum sviðum fyrir norðan, mörg verkefni
eru í vinnslu og önnur þegar í farvatninu, segir í fréttatilkynningu.