Þæfingsfærð og óveður er á Tjörnesi einnig er þæfingsfærð frá Kópaskeri og til Raufarhafnar og austur á
Langanes, ófært er um Hálsa. Þæfingsfærði er á Brekknaheiði. Á Norðurlandi vestra eru víðast hvar hálkublettir en
þó er hálka og skafrenningur á Þverárfjalli og í Langadal. Snjóþekja og skafrenningur á Siglufjarðarvegi. Mjög mikil vindur
og skafrenningur er á Blönduósi og þar í kring. Hálkublettir og skafrenningur á Vatnsskarði.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi. Á Suðausturlandi er hálka austan við Höfn en autt þar fyrir vestan. Vegir
á Suðurlandi eru greiðfærir. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og fáeinum öðrum leiðum.
Á Vestfjörðum er víða nokkur hálka eða snjóþekja og sumstaðar skafrenningur eða él. Snjóþekja og élagagnur er
á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum.
Samkvæmt ábendingum veðurfræðings á vef Vegagerðarinnar, er heldur vaxandi snjókoma um mest allt Norður- og Austurland. Eins á Ströndum og
norðanverðum Vestfjörðum vestur í Dýrafjörð. Sums staðar þétt logndrífa í fyrstu, en annars er vaxandi NA-átt,
strekkingsvindur eða allhvass, þetta 10-15 m/s og talsvert kóf og lélegt skyggni verður á flestum vegum. Síðar í kvöld einnig suður alla
Austfirði í Lón og Hornafjörð. Dregur víðast úr hríðinni undir nóttina og þá éljagangur, áfram
þó skafrenningur og blinda víðast norðan- og austantil á landinu.