Útgjöld til HA skorin niður um tæpar 130 milljónir króna

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2009 sem lagt er fyrir aðra umræðu kemur fram að útgjöld til Háskólans á Akureyri eru skorin niður um 127,5 milljónir króna, eða um 8,8%. Þorsteinn Gunnarsson rektor hefur sent starfsfólki HA tölvupóst, þar sem fram kemur að stefnt verði að því að mæta fyrirhuguðum niðurskurði án þess að segja upp starfsfólki.   

Frumvarp til fjárlaga var á dagskrá Háskólaráðs í morgun, sem samþykkti að fela framkvæmdastjórn háskólans að gera tillögur að rekstraráætlun fyrir árið 2009 þar sem stefnt verði að því að mæta fyrirhuguðum niðurskurði án þess að segja upp starfsfólki.  Þessi ákvörðun hefur verið kynnt forsvarsmönnum þeirra stéttarfélaga sem eiga hér hlut að máli.  Ég vona að náist góð samstaða hér innan háskólans að vernda þau mikilvægu störf sem hér eru stunduð, segir í tilkynningu rektors.

Nýjast