Hvað einstaka námsleið varðar er viðskiptafræði vinsælust en þar eru skráðir 362 nemendur til náms í haust á öllum námsárum. Þann fyrsta ágúst síðast liðinn gengu kennaradeild og félagsvísinda- og lagadeild saman í eina sæng og heitir deildin nú hug- og félagsvísindadeild. Námsframboð er hið sama og áður og er eina breytingin sú að yfirstjórn er sameinuð. Deildarforseti nýju deildarinnar er Sigurður Kristinsson en hann gegndi áður starfi deildarforseta félagsvísinda- og lagadeildar.
Nýtt nám - Heimskautaréttur (Polar Law)
Við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri er boðið upp á þriggja missera (90 ECTS) meistaranám í heimskautarétti sem leiðir til prófgráðunnar LL.M. (Legum Magister, meistari í lögum) og fjögurra missera (120 ECTS) nám sem lýkur með M.A.-gráðu. Auk þess er boðið upp á tveggja missera (60 ECTS) diplómunám á meistarastigi og tveggja missera (60 ECTS) diplómunám á bakkalárstigi.
Í námi í heimskautarétti við Háskólann á Akureyri er lögð sérstök áhersla á umhverfis-, auðlinda- og hafrétt, réttindi minnihluta og frumbyggjarétt, sem og landsrétt þjóða á heimskautasvæðinu. Nemendur kynnast réttarstöðu, stjórnskipun og stjórnsýslu landsbyggðar, jaðarsvæða og örríkja á heimsskautasvæðinu sérstaklega með hliðsjón af þróuninni í Evrópu (ESB) og út frá hugmyndum um „norrænu víddina" innan ESB og „vesturheimsvíddina", s.s. NAFTA. Einnig er fjallað ítarlega um lagalegar forsendur sjálfbærrar þróunar, mannlífsþróun á norðurslóðum og festu og gagnsæi í stjórnsýslu, stefnumótun á norðurslóðum og nýjungar í þjóðarétti.
Upphaf kennslu
Kennsla nýnema í grunnnámi hófst í dag, þriðjudaginn 19. ágúst með
dagskrá sem nefnd er velgengnisvika. Um er að ræða sérstaka kynningarviku sem hefur það að markmiði að undirbúa nýnema fyrir nám
og starf í háskóla. Þar er tölvuumhverfi og þjónusta við nemendur kynnt samhliða því að nemendur vinna saman og kynnast eldri
nemendum og starfsfólki. Boðið er upp á hagnýt undirbúningsnámskeið auk hópeflis og ætlast er til að allir nýnemar noti
sér þessa daga til að undirbúa sig fyrir háskólanámið. Þetta er í sjöunda sinn sem velgengnisvikan er haldin, en hugmyndin er
upphaflega fengin frá erlendum háskólum og er sérstaklega þekkt hjá skólum þar sem nemendur koma víðsvegar að. Boðið er
upp á hliðstæða dagskrá fyrir skiptinema og nýja starfsmenn.
Kennsla eldri nemenda hefst mánudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá.