Tryggt verði að byggingafram- kvæmdir stöðvist ekki

Stjórn Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi hvetur sveitarstjórnir á starfssvæði félagsins til að hafa frumkvæði að því að tryggja að byggingaframkvæmdir stöðvist ekki í landshlutanum.  Sveitarfélögin og öll fyrirtæki á Norðurlandi stór og smá verða nú að velta hlutunum fyrir sér að nýju og forgangsraða verkefnum með tilliti til atvinnusköpunar.  

Það dylst engum sem fylgjast með fréttum að staða þessarar mikilvægu atvinnugreinar í okkar samfélagi er um þessar mundir erfið.  Í byggingariðnaðinum á landsvísu hafa á síðustu misserum starfað um 16.000 manns og hefur hlutfall þeirra sem í þessari grein hafa starfað á Norðurlandi síst verið lægra en landsmeðaltal. Það skiptir því miklu máli fyrir svæðið í heild að þessi atvinnugrein stöðvist ekki. Stjórn Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi hvetur sveitarstjórnir á starfssvæði félagsins til að hafa frumkvæði að því að tryggja að byggingaframkvæmdir stöðvist ekki í landshlutanum.  Sveitarfélögin og öll fyrirtæki á Norðurlandi stór og smá verða nú að velta hlutunum fyrir sér að nýju og forgangsraða verkefnum með tilliti til atvinnusköpunar.  Þá bendir félagið á að nú er rétti tíminn til að sinna viðhaldsframkvæmdum þar sem þær eru í senn mannaflafrekar og krefjast í fæstum tilfellum mikilla innkaupa á efni erlendis frá.

Þá hvetur félagið til þess að bæjar- og sveitarstjórnir á Norðurlandi til þess að veita fyrirtækjum í byggingariðnaði svigrúm til aðlögunar á breyttum aðstæðum á fjármálamarkaði með sveigjanleika varðandi greiðslur gatnagerðargjalda, en slík fyrirgreiðsla getur haft veruleg áhrif á áframhald framkvæmda í greininni.

Stjórn Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi hvetur til þess að strax verði tekið á þessum vanda og tryggt að áfram verði öflugur byggingariðnaður á Norðurlandi, en öflugur byggingariðnaður er oft besti mælikvarðinn á gróskuna í samfélaginu, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast