Á fundinum í mars var umfjöllun um reglur um kjör embættismanna frá 3. maí 2007 ásamt vinnureglum sem eru hluti þeirra. Jafnframt var samþykkt eftirfarandi tillaga að breytingum á ofangreindum reglum. "Samþykkt að lækka laun embættismanna hjá Akureyrarbæ. Tillaga að lækkun skal kynnt fulltrúum embættismanna og leitað umsagnar þeirra. Tillaga að lækkun er í samræmi við úrskurð kjararáðs frá 1. mars 2009 um lækkun launa embættismanna hjá ríkinu sem undir það heyra og í samræmi við lækkun launa stjórnenda hjá ýmsum öðrum sveitarfélögum." Sem fyrr segir hefur þessi tillaga nú verið dregin til baka og umfjöllun um breytingar á kjörum embættismanna frestað.