03. desember, 2008 - 15:50
Fréttir
Beagle tíkin Kría sem hvarf frá Sólheimum á Svalbarðsströnd fyrir viku og sagt var frá hér á vefnum, fannst á lífi
í gær. Kría hafði álpast inn í hús á Svalbarðsströnd um það bil er eigandinn var að bera farangur sinn út í
bíl og halda á suðrænar slóðir.
Síðan skellti hann í lás og tíkin var þarna inni í tæpa viku án matar eða drykkjar. Það var svo lítil stúlka
sem rann á hljóðin úr henni í gær og var tíkinni var bjargað úr prísundinni.