23. mars, 2008 - 12:10
Fréttir
Víðþekktur rússneskur kór, TRETYAKOV, syngur á Akureyri annan í páskum, 24. mars nk. Það er einstakt tækifæri, sem
þarna býðst, að hlýða á óviðjafnanlegan rússneskan söng. Þessi kór kom til Reykjavíkur í desember 2005 og
þóttu tónleikar kórsins í Seltjarnarneskirkju einstakur viðburður í tónlistarlífinu. Kórinn syngur jöfnum höndum
á tónleikum, á sýningum og við kirkjulegar athafnir, auk þess sem söngskóli er rekinn á vegum kórsins. Rússneska
sendiráðið hefur, í samvinnu við AIM-Festival á Akureyri, haft milligöngu um þessa heimsókn.
Einn af stærstu viðburðum AIM-Festival á Akureyri í júní nk. verður flutningur á einu stórbrotnasta kórverki allra tíma,
Wesper op. 37 eftir Rússann Rachmaninov. Má líta á tónleika TRETYAKOV kórsins sem forboða þessa viðburðar. Kórinn syngur við
guðsþjónustu að hætti rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í Glerárkirkju og hefst athöfnin kl. 9:30 f.h. Síðar sama dag
kl. 15 verða tónleikar í Akureyrarkirkju. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.