28. júní, 2008 - 13:34
Fréttir
Rétt fyrir miðnætti barst Slökkviliði Akureyrar tilkynning um eld í Myndlistarskólanum í Kaupvangsstræti. Allt vakthafandi lið frá
aðalstöð og flugvelli var kallað á staðinn, ásamt því að mannskapur af tveimur frívöktum var kallaður til.
Reykafarar hófu þegar leit í húsinu en mikill reykur og hiti var á miðhæð hússins. Reykafarar komust fljótlega í upphaf eldsins
í kaffiaðstöðu á miðhæð hússins og vel gekk að ráða niðurlögum hans. Húsið er stórt og á þremur
hæðum og hafði reykur komist í stigahús á milli hæða. Grunur beinist að rafmagnstækjum í eldhúsinnréttingu á
kaffistofu en rannskókn stendur yfir. Það er ljóst að ekki mátti miklu muna að verr færi þar sem mikill hiti og reykur var á allri
miðhæðinni og ljóst að eldurinn hafði kraumað um stund. Tjón er talsvert en mikið er af viðkvæmum tölvubúnaði í
húsinu ásamt bókasafni og einhverjum verkum nemanda.