Talsvert tjón í bruna í Mynd- listarskólanum á Akureyri

Rétt fyrir miðnætti barst Slökkviliði Akureyrar tilkynning um eld í Myndlistarskólanum í Kaupvangsstræti. Allt vakthafandi lið frá aðalstöð og flugvelli var kallað á staðinn, ásamt því að mannskapur af tveimur frívöktum var kallaður til. Reykafarar hófu þegar leit í húsinu en mikill reykur og hiti var á miðhæð hússins. Reykafarar komust fljótlega í upphaf eldsins í kaffiaðstöðu á miðhæð hússins og vel gekk að ráða niðurlögum hans. Húsið er stórt og á þremur hæðum og hafði reykur komist í stigahús á milli hæða. Grunur beinist að rafmagnstækjum í eldhúsinnréttingu á kaffistofu en rannskókn stendur yfir. Það er ljóst að ekki mátti miklu muna að verr færi þar sem mikill hiti og reykur var á allri miðhæðinni og ljóst að eldurinn hafði kraumað um stund. Tjón er talsvert en mikið er af viðkvæmum tölvubúnaði í húsinu ásamt bókasafni og einhverjum verkum nemanda.

Nýjast