Tafir á framkvæmdum við lóð Sundlaugar Akureyrar hafa áhrif á rekstur Óðins

Ásta Birgisdóttir formaður Sundfélagsins Óðins segir að tafir á framkvæmdum við lóð Sundlaugar Akureyrar hafi haft veruleg áhrif á rekstur félagsins, það hafi tapað umtalsverðum fjármunum vegna tafanna.  Framkvæmdum við lóðina átti að ljúka í byrjun sumars.  

"Tekjutap okkar er fyrst og fremst  tilkomið vegna þess að við höfum ekki getað innheimt fé vegna sölu á auglýsingum á skiltum við laugarbakkann.  Að jafnaði höfum við töluverðar tekjur af þessari auglýsingasölu," segir Ásta.  Skiltin voru girt af snemma í vor, síðar um sumarið voru þau tekin niður og nú segir Ásta að ekki sé vitað í hvernig ástandi þau séu.  "Við höfum ekki getum endurnýjað samninga við okkar styrktaraðila eins og til stóð að gera í vor og því höfum við orðið af töluverðum tekjum," segir Ásta.

Til að bæta gráu ofan á svart, sá félagið sér ekki fært að halda Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi í lok júní á liðnu sumri líkt og Sundsamband Íslands hafði óskað eftir.  Ekki þótt gerlegt að boða um 600 manns á sundlaugarbakkann eins og staða mála var á þeim tíma, "og er raunar enn," bætir Ásta við, því að hennar sögn ganga framkvæmdir við lóð laugarinnar afar hægt.  Þeim átti að ljúka í byrjun sumar, er ekki lokið, en vonir standi til að lokið verði við lóðina í næsta mánuði í tengslum við opnun líkamsræktarstöðvarinnar.

"Við erum að sækja svo til öll okkar mót  á höfuðborgarsvæðinu og það hefur mikinn kostnað í för með sér.  Það gefur því augaleið að það að missa tekjur af stóru sundmóti og líka styrki frá styrktaraðilum okkar mun setja stórt strik í rekstur þessa árs," segir Ásta.

Íþróttaráð fjallaði um málið á fundi nýlega og vísaði erindi Sundfélagsins til Fasteigna Akureyrarbæjar en Ásta segir að félagið fari fram á að fá bætur frá bæjarfélaginu vegna tekjumissis.

Nýjast