Sundlaugin á Akureyri vinsælasta íþróttamannvirkið

Sundlaug Akureyrar er vinsælasta íþróttamannvirkið í bænum samkvæmt yfirliti um heimsóknir í árskýrslu bæjarins fyrir síðasta ár. Alls komu 323.752 gestir í heimsókn í Sundlaugina á síðasta ári, eða heldur færri gestir en þrjú ár þar á undan. Næst flestir gestir heimsóttu Íþróttahöllina á síðasta ári, eða 297.000 talsins. Alls heimsóttu 112.000 gestir Íþróttahús Glerárskóla á síðasta ári og gestir Glerárlaugar voru 52.000 talsins. Tæplega 96.000 gestir komu í íþróttahús Síðuskóla og um 85.000 gestir komu í fjölnotahúsið Bogann.

Opnunardagar í Hlíðarfjalli voru alls 112 á árinu 2007. Alls voru seldir rúmlega 26.000 lyftumiðar og tæplega 1000 árskort. Þá fóru fram 36 leikir á Akureyrarvelli á árinu 2007.

Nýjast