Styrkja VMA til tækjakaupa

Í ár er blásið til sóknar á málmsmíðabraut Verkmenntaskólans á Akureyri, en brautin er ein elsta braut skólans og skólinn fagnar 25 ára afmæli í ár. Aðilar tengdir málmsmíðagreininni hafa í góðu samstarfi við skólanna ákveðið að bæta verulega tækjakost skólans á þessu sviði, en ýmis sá búnaður sem notaður er til kennslu er orðinn gamall og lúinn.  Brýnt er að kaupa ný tæki fyrir brautina en hún hefur dregist talsvert aftur úr á því sviði.

Tvö fyrirtæki hér á Akureyri, Blikkrás og Blikk- og tækniþjónustan hafa fært  skólanum veglegar peningagjafir til kaupa á búnaði fyrir mámsmiðabrautina, samtals um 500 þúsund krónur. Auk þess hefur Félag blikksmiðja ákveðið að gefa peninga í þetta málefni. Þá hafa Samtök iðnaðarins ákveðið að styrkja brautina um  250.000 kr. en þess má geta að samtökin hafa jafnframt styrkt aðra skóla einkum á höfuðborgarsvæðinu s.s. nýja Tækniskólann í Reykjavík (gamla Iðnskólann) um a.m.k. hundrað milljónir.

Þá mun Félag málmiðnaðarmanna styrkja skólann veglega með 850 þúsund króna fjárframlagi. Þar að auki hefur Félag málmiðnaðarmanna gert leigusamning við málmiðnaðarbraut VMA vegna húsnæðis sem félagið er búið að  kaupa  og er að innrétta til þessa að geta boðið upp á fullnaðarnám í bifvélavirkjun. Sem kunnugt er spunnust talsverðar umræður um það á síðasta ári að nemar í bifvélavirkjun gátu ekki lokið námi sínu hér fyrir norðan vegna aðstöðuskorts. Frá og næsta hausti verður það hins vegar mögulegt.

Nýjast