Sameinaðir myndu Saga Capital og VBS verða einn öflugasti fjárfestingabanki landsins með ríflega 70 starfsmenn, afar fjölbreyttar tekjustoðir, trausta fjármögnun og sterka fjárhagsstöðu. Sameinaður banki yrði með 16.5 milljarða eigið fé og 31% CAD eiginfjárhlutfall. Sameining bankanna er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.