Stjórnir Saga Capital og VBS Fjárfestingarbanka ræða sameiningu

Stjórnir Saga Capital Fjárfestingarbanka og VBS Fjárfestingarbanka hafa ákveðið að taka upp formlegar viðræður um sameiningu bankanna. Gert er ráð fyrir því að ljúka sameiningaviðræðunum á næstu vikum og leggja samrunaáætlun fyrir hluthafafundi beggja banka eins fljótt og auðið er.  

Sameinaðir myndu Saga Capital og VBS verða einn öflugasti fjárfestingabanki landsins með ríflega 70 starfsmenn, afar fjölbreyttar tekjustoðir, trausta fjármögnun og sterka fjárhagsstöðu. Sameinaður banki yrði með 16.5 milljarða eigið fé og 31% CAD eiginfjárhlutfall. Sameining bankanna er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.

Nýjast