04. janúar, 2008 - 10:56
Fréttir
Slippurinn Akureyri átti langlægsta tilboð í lokaendurbætur á Grímseyjarferjunni Sæfara en tilboð í óformlegu lokuðu
útboði voru opnuð nú í morgun. Slippurinn bauðst til að vinna verkið fyrir tæpar 13 milljónir króna en Skipasmíðastöð
Njarðvíkur, sem átti næstlægsta tilboð í verkið bauð 22,4 milljónir króna. Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri
Slippsins sagði að í tilboði fyrirtækisins væru nokkrir fyrirvarar og skilgreiningar, auk þess sem talsverð vinna væri eftir, sem ekki væri
með í þessu útboði. "Mér finnst aðrir bjóðendur hins vegar vera gríðarlega háir," sagði Anton, sem gerir sér vonir um
að verkið verði unnið á Akureyri.
Ráðgert er að framkvæmdir við lokaendurbætur hefjist nú í kringum miðjan janúar og er áætlaður verktími 3 vikur. Anton
sagði að verkefnastaða fyrirækisins væri góð en að þetta verk yrði ágætis viðbót. Alls bárust fjögur tilboð
í verkið og var það þriðja lægsta frá Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði, þar sem unnið hefur verið
að endurbótum á Grímseyjarferjunni. Tilboðið frá Vélsmiðju Orms og Víglundar hljóðaði upp á tæpar 22,9
milljónir króna en Stálsmiðjan í Reykjavík bauðst til að vinna verkið fyrir tæpar 27 milljónir króna. Um er að
ræða nokkra verkþætti svo sem að smíða dyr á stjórnborðssíðu sem verður aðalinngangur í ferjuna sem gerir
hreyfihömluðum auðveldara um vik. Samskonar dyr verða settar á bakborðshliðina og verður neyðarútgangur. Þá verður skipt út um
22 fermetrum af stáli á byrðingi skipsins sem auðveldar og bætir klössun skipsins. Komið verður fyrir kælingu í efri flutningalestinni vegna
fiskflutninga, og salernum verður breytt þannig að þau nýtist hreyfihömluðum á betri hátt en ella, auk nokkurra fleiri smærri verka. Vegna
umræðunnar lét Vegagerðin kanna hvað myndi kosta að smíða nýtt skip í líkingu við Grímseyjarferju og var niðurstaða
þeirrar könnunar að það myndi kosta að minnsta kosti 900 milljónir króna miðað við verðlag í dag.