28. mars, 2008 - 17:20
Fréttir
Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í vikunni að beina því til sveitarstjórnar að hún beiti sér
tafarlaust fyrir því að tryggja umferðaröryggi gangandi vegfarenda á Eyjafjarðarbraut vestri við Hrafnagilsskóla og Krummakot. Verði efnistaka
úr Þveráreyrum efri, vegna lengingar flugbrautar, óumflýjanleg beinir skólanefnd þeim tilmælum til sveitastjórnar að tafarlaust
verði ráðist í framkvæmd við undirgöng núverandi vegar við Hrafnagilsskóla eða flutning á Eyjafjarðarbraut vestri í
samræmi við gildandi aðalskipulag.