Þessi skjöl eru grundvöllur greinar sem lektorarnir Birgir Guðmundsson og Markus Meckl hafa ritað í nýjasta hefti Sögu, tímarits Sögufélagsins og fjallar um Íslendinga og Ísland í skjölum Stasi. Greinin ber heitið; "Á sumarskóm í desember, Ísland í skýrslum austurþýsku öryggislögreglunnar Stasi."
Við afendingu skjalanna mun Páll Björnsson, ritstjóri Sögu og lektor við Háskólann á Akureyri flytja ávarp og auk þess munu greinarhöfundarnir, Birgir Guðmundsson og Markus Meckl segja frá helstu niðurstöðum. Afhendingin hest kl 12.30 í veitingasal Amtsbókasafnsins.