02. janúar, 2009 - 19:36
Fréttir
Norðlendingur ársins 2008, að mati hlustenda Útvarps Norðurlands, er Sindri Cæsar Magnason. Sindri vann þá hetjudáð, í nóvember
sl. að bjarga konu úr bíl sem oltið hafði út í Eyjafjarðará. Bíllinn fór á hvolf í mittisdjúpu vatni og var konan
meðvitundarlaus þegar Sindri náði að opna hurð á bílnum og bjarga konunni á þurrt.
Norðlendingur ársins er jafnframt fulltrúi hóps vegfarenda sem að slysinu komu og náðu, með miklu snarræði og samstilltu átaki, að
bjarga lífi konunnar.