11. nóvember, 2008 - 20:09
Fréttir
Á fundi félagsmálaráðs Akureyrarbæjar í gær var lagt fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu 10 mánuði
ársins. Þar kom fram að veitt aðstoð nam um 53 milljónum króna, sem er um 9,2% hækkun á milli ára, miðað við sama
tímabil.
Á sama fundi félagsmálaráðs var lagt fram minnisblað frá húsnæðisfulltrúa um stöðu biðlista eftir
leiguíbúðum hjá Akureyrarbæ. Á biðlista eftir leiguhúsnæði hjá Akureyrarbæ voru þann 20. október sl. samtals 91
umsækjandi. Þetta er 21 umsókn færra en sl. haust.