Ráðhústorgið á Akureyri er orðið grátt á ný

Ráðhústorgið á Akureyri, sem var þökulagt í skjóli nætur fyrir verslunarmannahelgi, er orðið grátt á ný en í dag voru þökurnar fjarlægðar af torginu.  Það var Sigurður Guðmundsson verslunarmaður í göngugötunni sem stóð fyrir framkvæmdinni, þar sem hann vildi grænni bæ.  

Þökurnar voru lagðar án leyfis bæjaryfirvalda en þar á bæ var ákveðið að þær fengju að vera á torginu fam yfir verslunarmannahelgi. Þökulagt Ráðhústorgið vakti mikla hrifningu meðal bæjarbúa og gesta.

Nýjast