03. júní, 2008 - 13:28
Fréttir
Bílaklúbbur Akureyrar ásamt Akureyrarbæ og stuðningsaðilum sínum hefur nú komið upp tveimur gámum við Glerárgötu og
Drottningarbraut til að minna ökumenn og þátttakendur í Bíladögum 2008 á að fara nú varlega í umferðinni.
Bíladagar á Akureyri hafa þróast undanfarin ár í að verða langstærsta mótorsport hátíð landsins og búast
skipuleggjendur hátíðarinnar við 10-12 þús manns í bæinn. Bíladagar fara fram dagana 13-17 júní og eru skipulagðir
viðburðir alla daga. AIM eða Akureyri International Musicfestival mun einnig fara fram sömu daga og því ljóst að um nóg verður að vera á
Akureyri þessa daga.