Ökumaður og farþegi sluppu með skrekkinn eftir útafakstur

Ökumaður og farþegi sluppu með skrekkinn þegar fólksbíll fór út af veginum rétt norðan við Leirubrúna á Akureyri og hafnaði á hjólunum ofan í fjöru, sunnan vegarins nú seinni partinn. Bíllinn fór fram af nokkuð háum kanti, yfir stórgrýti og mátti litlu muna að bílinn færi á hliðina.  

Samkvæmt upplýsingum lögreglu var bíllinn á austurleið þegar óhappið varð. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum þegar hann mætti bíl úr gagnstæðri átt og hafnaði á hálkubletti á veginum með fyrrgreindum afleiðingum. Sjór náði upp fyrir miðja hjólbarða bílsins í fjörunni. Hann virtist ekki mikið skemmdur en talið er að undirvagninn hafi farið illa þar sem bíllinn fór yfir stór grjót í vegkantinum.

Nýjast