Hans Kristján lagði lengi stund á kennslu við Verkfræði og raunvísindadeild HÍ, gegndi stjórnunarstöðum hjá
Iðntæknistofunum og var starfsmaður og deildarstjóri hjá EFTA á sviði vísindamála. Á árunum 1995-1999 starfaði Hans sem
fulltrúi Menntamálaráðuneytis á sviði vísinda, menntamála og menningar við Sendiráð Íslands í Brussel. Þá
var hann rektor NorFA, norrænnar stofnunar um vísindamenntun á árunum 1999-2003 en þá settist hann í stól forstöðumanns
Rannís.
Einnig hefur Hans Kristján verið virkur í margs konar félagastarfi og átt sæti í fjölmörgum nefndum, einkum á sviði vísinda.
Hann er kvæntur Sólveigu Hulsdunk Georgsdóttur, mannfræðingi, á einn son og tvö barnabörn.