Fundargestir voru sammála um að staðan væri alvarleg en engu að síður komu fram fjölmargar hugmyndir og ábendingar um tækifæri og
áherslur sem nýst gætu til að milda áhrifin af þeim erfiðleikum sem fram undan eru. Hugmyndirnar snerust annars vegar um það sem mögulegt er
að gera strax, en jafnframt um verkefni sem liggja lengra inn í framtíðinni og eru líkleg til að styrkja og efla svæðið til lengri tíma.
Meðal þess sem fram kom var áhersla á að opinberir aðilar yrðu að forgangsraða verkefnum í nánustu framtíð, þannig að
mannfrek verkefni og verkefni sem fela í sér innlendan kostnað verði tekin framar í framkvæmdaröð en önnur, að efla ferðaþjónustu
sem er til staðar og felur í sér gríðarlega möguleika og svo að leggja aukna áherslu á innlenda framleiðslu sem er í miklu mæli
á Eyjafjarðarsvæðinu. Fram kom að ýmis fyrirtæki hafa þegar brugðist við og hafa sett í gang verkefni sem að þessu
lúta.
Fundurinn var jákvæður og fól í sér baráttuanda og vilja til að snúa bökum saman í sókn til framtíðar. Gert er
ráð fyrir að áframhald verði á þeirri samvinnu sem hófst með þessum fundi.