Mateja Zver leikmaður 14. umferðar

Vefsíðan www.fótbolti.net hefur valið Mateju Zver leikmann Þór/KA sem besta leikmann 14. umferð Landsbankadeildar kvenna. Mateja hefur vakið verðskuldaða athygli eftir að hún kom til liðs við Þór/KA og í síðustu umferð átti hún stórleik með liði sínu gegn Fjölni þar sem hún skoraði 3 mörk. Mateja hefur leikið 5 leiki með liðinu og skorað í þeim samtals 5 mörk sem er glæsilegur árangur. Er þetta í annað sinn í sumar sem leikmaður Þór/KA hlýtur þessa viðurkenningu, þar sem Rakel Hönnudóttir hlaut þessa viðurkenningu fyrr í sumar.

Við viljum benda á frétt og viðtal við Mateju á heimasíðu fotbolta.net sjá hér.

Nýjast