Lögreglan á Akureyri auglýsir eftir vitnum að árekstri er varð um klukkan 10:45 laugardagsmorguninn 4. október s.l. á Eyjafjarðarbraut eystri.
Þar rákust á rauð Kia Sportage jeppabifreið og græn Subaru Impreza fólksbifreið skammt frá bænum Grýtu. Þeir sem kunna að
hafa orðið vitni að árekstrinum eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464-7700.
Landsbankinn og Drift EA hafa gert samstarfssamning sem miðar að því að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf á Íslandi með því að styrkja umgjörð, ráðgjöf og tengslanet fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki.
Í gær var tilkynnt hvaða einstaklingar hefðu hlotið sæmdarheitin Íþróttakona og Íþróttakarl hjá Þór árið 2025. Í kvennaflokki var fótboltakonan Hulda Björg Hannesdóttir kjörin og er það í fyrsta sinn sem hún hlýtur viðurkenninguna. Í karlaflokki var það fótboltamaðurinn Sigfús Fannar Gunnarsson sem var kjörinn og er það einnig fyrsta skiptið sem hann hlýtur þessa viðurkenningu.
Guðni Arnar Guðnason, sérfræðingur í lyf- og innkirtlalækningum, hefur verið ráðinn tímabundið sem forstöðulæknir lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri í fjarveru Guðjóns Kristjánssonar. Að hans sögn eru tækifærin mörg þegar kemur að frekari uppbyggingu lyflækninga á SAk en jafnframt áskoranir sem snúi fyrst og fremst að mönnun og að tryggja þekkingu til framtíðar.
Aðalstjórn Íþróttafélagsins Þórs býður félagsfólki, velunnurum, starfsfólki og iðkendum að mæta í Hamar þriðjudaginn 6.janúar þar sem kjöri íþróttafólks Þórs 2025 verður lýst. Samkoman hefst kl. 17.
Um áramótin taka nýir eigendur við Jónsabúð. Jón Ingólfsson og Jórlaug Daðadóttir hafa nú selt reksturinn og nýir eigendur eru Erica Rivera og Hreinn Skúli Erhardsson. Búðin verður lokuð 2. janúar, en opnar laugardaginn 3. janúar og verður síðan opin með sviðuðu sniði og verið hefur.
Þegar venjulegur mánudagur blasir við fólki þá rennur upp ljós, partýið er búið og lífið færist aftur i fastar skorður. Eitt af þvi sem gera þarf víða er að pakka niður jólaskrauti og þá stendur eftir eitt stk jólatré.