Logi Már býður sig fram í 1.-3. sæti hjá Samfylkingunni

Logi Már Einarsson arkitekt hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar  í Norðausturkjördæmi en ekki aðeins í 3. sæti, líkt og tilkynnt var upphaflega. Logi er 44 ára arkitekt búsettur á Akureyri, kvæntur Arnbjörgu Sigurðardóttur, lögmanni og eiga þau tvö börn. Logi rekur ásamt öðrum arkitektastofuna Kollgátu.  

Þá sækist Jónas Abel Mellado eftir 3. - 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hann er 22 ára afgreiðslumaður í Bónus á Akureyri. Jónas er fæddur og uppalinn á Akureyri og er stúdent af málabraut Menntaskólans á Akureyri. Jónas er í stjórn Sölku, félags Ungra Jafnaðarmanna á Akureyri og hefur verið virkur í starfi ungliða. Einnig á hann einn dreng, Magnús Adrían Mellado 2 ára. "Ég býð mig fram til að svara kalli almennings um endurnýjun og vera fulltrúi ungu kynslóðarinnar á þingi."

Nýjast