Leyndardómar Svarfaðardalsár kynntir á kynningarkvöldi SVAK

Í kvöld, þriðjudaginn 17. mars, munu þeir Gunnsteinn Þorgilsson bóndi á Sökku í Svarfaðardal og Gunnlaugur Sigurðsson bóndi á Klaufabrekkum, kynna fyrir veiðimönnum leyndardóma Svarfaðardalsár, á vegum Stangaveiðifélags Akureyrar, SVAK. Kynningin fer fram í Framsóknarhúsinu á Akureyri og hefst kl. 20:30.  

Gunnsteinn þekkir ánna mjög vel og hefur oft gefið veiðimönnum góð ráð um veiðistaði og veiðiaðferðir. Gunnlaugur er mikill veiðirefur og fara margar sögur af fengsæld hans í ánni.  Svarfaðadalsá er mjög vanmetin sem veiðiá en er þó tvímælalaust ein af veiðiperlum Eyjafjarðar. Ekki skemmir fyrir að hún er mjög ódýr valkostur enda kosta dagsleyfi þar aðeins 2-4 þúsund krónur.
Sumarið 2008 veiddust þar um 400 bleikjur (stærst 2,4 kg) og 43 urriðar (stærst 3,1 kg). Allir eru velkomnir  á kynninguna - aðgangur er ókeypis en boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Nýjast