Komur skemmtiferðaskipa hafa ekki verið afboðaðar

Pétur Ólafsson skrifstofustjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands telur að efnahagsástandið hér á landi muni ekki endilega hafa áhrif á komur skemmtiferðaskipa hingað næsta sumar. Þegar hafa 57 slík skip boðað komu sína til Akureyrar sumarið 2009.  

Pétur segir að vaninn sé sá að einhver bætist við nú í vetur og jafnframt muni nokkur skip afboða komu sína. "Þetta eru vanalega svona 2-4 skip sem afboða sig og önnur sem bætast við," segir hann.  Hann segir alls ekki augljóst nú að skemmtiferðaskipin muni afboða komu sína í stórum stíl og alls ekki hafi borið á því undanfarið þótt Ísland og þrengingar þess hafi verið í sviðsljósinu.

Pétur segir að menn verði bara að bíða og sjá, en útlit sé fyrir að þessi 57 skip muni koma næsta sumar og að gera megi ráð fyrir 25-30% aukningu farþega milli ára.  "Við höldum okkur við það þar til annað kemur í ljós," segir Pétur.

Nýjast