Kvennahandboltalið KA/Þórs mun á næsta vetri taka þátt í efstu deild kvenna á nýjan leik eftir árs fjarveru. Erlingur
Kristjánsson er einn af stjórnarmönnum og helstu aðstandenum liðsins og í samtali Vikudags við hann kemur í ljós að metnaðarfullar
hugmyndir eru í gangi varðandi liðið.„Stefna okkar er að ráða spilandi þjálfara, þ.e. öflugan leikmann sem getur þjálfað líka. Hann getur hvort sem er
verið íslenskur eða erlendur. Þar að auki viljum við fá 2 - 3 aðra leikmenn til liðsins sem koma með einhverja reynslu í hópinn.
Ætlunin er samt sem áður áfram að byggja liðið í kringum núverandi 3. flokk sem varð í 3.sæti Íslandsmótsins í
vetur,” sagði Erlingur en nánar er rætt við hann í Vikudegi nk. fimmtudag.
Í vetur las ég sagnabálk Einars Kárasonar, Óvinafagnað. Hef áður lesið Óvinafagnað, en rétt eins og með Sölku Völku og Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness þá er ekki síður gaman að lesa þær aftur og fá meiri dýpt.
„Ég kem alltaf við af og til og vitja fernunnar,“ segir Guðlaugur Benedikt Aðalsteinsson hárskeri á Akureyri. Hann ólst upp á Húsavík. Í einum hjóltúr frá bænum og að Tröllakoti skildi hann eftir kókómjólkurfernu vel skorðaða undir steini. Síðan er liðin nær hálf öld og enn eru leifar af fernunni undir steininum.
Katrín Sigurjónsdóttir tók við starfi sveitarstjóra Þingeyjarsveitar í byrjun ágúst. Hún segir móttökurnar hafa verið einstaklega góðar og er þegar farin að setja sig inn í fjölbreytt verkefni þessa víðfeðma sveitarfélags. Katrín vill vinna að framförum og farsælum lausnum – en ætlar líka að finna tíma til að kynnast berjalöndunum, ganga um Mývatnssveit og heimsækja Flatey.
Skólalóðin við Glerárskóla hefur formlega verið tekin í notkun. Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkurt skeið en nú er þeim loksins að mestu lokið og leiktækin tilbúin til notkunar.
Starfsemi Fincafresh mun á næstu vikum verða flutt il Garðabæjar. Félagið hóf sína starfsemi á Dalvík en flutti til Akureyrar fyrir fáeinum misserum. Nú verður enn á ný lagt upp í ferðalag. Fincafresh selur ferska ávexti beint frá Spáni til áskrifenda.
Hafna þurfti tugum umsókna sem bárust um Heimavist MA og VMA nú á þessu hausti. Vistin er fullsetin, en þar búa nú um 330 nemendur sem stunda ýmist nám í Menntaskólanum á Akureyri eða Verkmenntaskólanum á Akureyri. Yfir 400 umsóknir bárust um vist á þessu hausti, en pláss er fyrir 330.