KA sigraði en Þór tapaði í síðustu leikjum sumarsins

Þór og KA léku sína síðustu leiki í 1.deild karla í knattspyrnu um helgina. KA-menn tóku á móti Víkingi frá Ólafsvík fyrir framan frekar fáa áhorfendur á Akureyrarvellinum sl. laugardag.  Nokkuð blés á meðan á leiknum stóð og höfðu KA menn vindinn í bakið í fyrri hálfleik. Þeir nýttu sér það ágætlega og voru sterkari aðilinn, Steinn Gunnarsson skoraði sigurmark leiksins með glæsilegu langskoti um miðbik fyrri hálfleiks.

Í síðari hálfleik áttu víkingar nokkrar hættulegar sóknir sem allar strönduðu á Matus Sandor sem var frábær í leiknum. Lokatölur 1-0 fyrir KA.

Þórsarar héldu suður á Reykjanes og öttu kappi við Njarðvíkinga sem fyrir leikinn voru fallnir í 2.deild. Fyrri hálfleikur var sæmilegur hjá Þór en staðan eftir hann var 1-1 þar sem Alexandar Linta skoraði mark Norðanmanna. Síðari hálfleikur var hins vegar arfaslakur af þeirra hálfu og skoruðu Njarðvíkingar tvö mörk án svars frá Þór og lokatölur því 3-1.

Nýjast