Við þessu vill stjórn FÉSTA bregðast með eftirfarandi aðgerðum: Næstu þrjá mánuði mun leiga ekki fylgja vísitölu neysluverðs, þ.e. leiga mun ekki hækka. Eftir þann tíma verður farið yfir stöðuna á ný. Góðar líkur eru á að Akureyrarbær taki upp sérstakar húsaleigubætur til þeirra tekjulægstu. Endanleg ákvörðun um þetta verður tekin hjá bænum á næstunni. Vonast er til þess að þetta geti komið til framkvæmda með vorinu.