Höfðingleg gjöf til FSA frá huldumanni

Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hefur borist höfðingleg gjöf frá velunnara sem ekki vill láta nafns síns getið.

Um er að ræða peningagjöf að fjárhæð 4 milljónir króna.  Að ósk gefanda verður fjárhæðin nýtt til kaupa á sérhæfðu eftirlitskerfi fyrir sjúklinga á slysadeild sjúkrahússins.  Forráðamenn FSA færa gefanda innilegar þakkir og kveðjur fyrir þessa myndarlegu gjöf til Gjafasjóðs Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.  

 

Nýjast