Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hefur borist höfðingleg gjöf frá velunnara sem ekki vill láta nafns síns getið.
Um er að ræða peningagjöf að fjárhæð 4 milljónir króna. Að ósk gefanda verður fjárhæðin nýtt til kaupa á sérhæfðu eftirlitskerfi fyrir sjúklinga á slysadeild sjúkrahússins. Forráðamenn FSA færa gefanda innilegar þakkir og kveðjur fyrir þessa myndarlegu gjöf til Gjafasjóðs Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.