Hermann Jón tekur við sem bæjarstjóri á Akureyri 9. júní

Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður bæjarráðs, tekur við starfi bæjarstjóra á Akureyri á fundi bæjarstjórnar þann 9. júní nk. Hann tekur við starfinu af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem tók við starfinu af flokksfélaga sínum Kristjáni Þór Júlíussyni í ársbyrjun 2007.  

Hermann Jón verður því þriðji bæjarstjórinn á kjörtímabilinu og mun hann gegna stöðunni í um eitt ár, eða fram að sveitarstjórnakosningunum vorið 2010. Hvorki Sigrún Björk né Hermann Jón munu taka biðlaun.

Nýjast