21. febrúar, 2009 - 00:03
Fréttir
Herdís Björk Brynjarsdóttir 25 ára, náms- og verkakona á Dalvík, hefur ákveðið að bjóða sig fram í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 3.-4. sæti í prófkjörinu.
Herdís Björk vann sem verkstjóri í frystihúsi Samherja á Dalvík í rúm þrjú
ár en vinnur nú almenn störf samhliða námi.
Helstu áherslumál verða mennta- og atvinnumál, virkara lýðræði og jafnréttismál. Henni finnst að ungt fólk eigi að koma
mun meira, og beinna að ákvarðanatöku í þjóðfélaginu. Herdís Björk hefur verið virkur félagi í Samfylkingunni og
Ungum Jafnaðarmönnum síðan 2007.