Herdís býður sig fram í 3.-4. sæti hjá Samfylkingunni

Herdís Björk Brynjarsdóttir 25 ára, náms- og verkakona á Dalvík, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 3.-4. sæti í prófkjörinu. Herdís Björk vann sem verkstjóri í frystihúsi Samherja á Dalvík í rúm þrjú
ár en vinnur nú almenn störf samhliða námi.

Helstu áherslumál verða mennta- og atvinnumál, virkara lýðræði og jafnréttismál. Henni finnst að ungt fólk eigi að koma mun meira, og beinna að ákvarðanatöku í þjóðfélaginu. Herdís Björk hefur verið virkur félagi í Samfylkingunni og Ungum  Jafnaðarmönnum síðan 2007.

Nýjast