Héraðsnefnd ekki lengur rekstraraðili Héraðsskjalasafnsins

Héraðsnefnd Eyjafjarðar er ekki lengur rekstraraðili Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir hönd þeirra sveitarfélaga sem að safninu standa, auk þess sem Fjallabyggð hefur tilkynnt að sveitarfélagið ætli ekki lengur að nota þjónustu safnsins. Af þessum sökum þarf að endurskoða samþykktina og samþykkja nýja í öllum sveitarfélögunum.  

Málið var til umfjöllunar á síðasta fundi stjórnar Akureyrarstofu og samþykkti stjórnin drög að nýrri samþykkt fyrir sitt leyti og óskaði eftir því þau verði send hinum sveitarfélögunum til umsagnar áður en til endanlegrar samþykktar kemur. Aðilar að Héraðsskjalasafninu eru auk Akureyrarbæjar: Arnarneshreppur, Eyjafjarðarsveit, Grímseyjarhreppur, Grýtubakkahreppur, Hörgárbyggð og Svalbarðsstrandarhreppur.

Nýjast