Heiðurviðurkenningar Akureyrarbæjar

Á myndinni er Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri með þeim sem hlutu viðurkenningar. Myndir Daníel St…
Á myndinni er Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri með þeim sem hlutu viðurkenningar. Myndir Daníel Starrason á vefsíðu Akureyrarbæjar

Heiðursviðurkenningar Akureyrarbæjar fyrir vel unnin störf í þágu menningar og samfélagsins hlutu að þessu sinni nafnarnir Þorsteinn Pétursson, Steini Pje, fyrir óeigingjarnt framlag sitt til varðveislu og nýtingar eikarbátsins Húna II, og Þorsteinn E. Arnórsson, fyrir mikilsvert framlag til varðveislu iðnaðarsögu Akureyrar og reksturs Iðnaðarsafnsins á Akureyri.

Þá hlaut Sunneva Kjartansdóttir dansari og danshöfundur styrk til að sinna köllun sinni og Drífa Helgadóttir var heiðruð fyrir framúrskarandi sjálfboðaliðastarf fyrir Lautina, athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Þar hefur hún starfað um 16 ára skeið.

Einbýlishúsið að Nonnahaga 9 sem teiknað er af Björgvini Snæbjörnssyni arkitekt hlaut Byggingalistaverðlaun Akureyrarbæjar
Drífa Helgadóttir var heiðruð fyrir framúrskarandi sjálfboðaliðastarf fyrir Lautina,

 

Þorsteinn Pétursson, Steini Pje, fyrir óeigingjarnt framlag sitt til varðveislu og nýtingar eikarbátsins Húna II

Athugasemdir

Nýjast