„Harðneskjulegt gagnvart landsbyggðinni“

Gestur Davíðsson.
Gestur Davíðsson.

Gestur Davíðsson, varðstjóri í fangelsinu á Akureyri, segir í samtali við Vikublaðið að þungt hljóð sé í starfsfólki eftir að dóms­málaráðuneytið grein­di frá því að fang­els­inu á Ak­ur­eyri verði lokað um mánaðarmótin. Fang­elsið á Ak­ur­eyri er minnsta rekstr­arein­ing Fang­els­is­mála­stofn­un­ar en þar eru vistaðir 8-10 fang­ar að jafnaði. 

Gestur bendir einnig á að fangelsiverðir hafi ávallt starfað náið með lögreglunni á Akureyri. Þetta sé því högg fyrir þá líka. „Þetta er alvarlegt og harðneskjulegt gagnvart landsbyggðinni,“ segir Gestur en nánar er rætt við hann í Vikublaðinu sem kom út í gær.

Smelltu hér til að gerast áskrifandi. 

 


Athugasemdir

Nýjast