Handtekinn með fíkniefni á Akureyrarflugvelli

Við venjubundið eftirlit á Akureyrarflugvelli um miðjan dag í gær var karlmaður um þrítugt handtekinn við komuna frá Reykjavík eftir að fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar hafði gefið til kynna að hann væri með fíkniefni í fórum sínum. Við frekari rannsókn kom í ljós að hann hafði tæplega 20 grömm af hvítum efnum innvortis.  Var maðurinn færður á lögreglustöðina þar sem mál hans var afgreitt og var hann síðan laus úr haldi lögreglu þá um kvöldið.

Nýjast