28. nóvember, 2008 - 14:44
Fréttir
Beagle tíkin Kría hvarf frá Sólheimum á Svalbarðsströnd á miðvikudagsmorgun og hefur ekkert spurst til hennar síðan. Beagle hundar
eru þeirrar náttúru að þeir gleyma sér gjarnan yfir slóð sem þeir finna og geta þá álpast eitthvert langt út í
buskann.
Veður hafa verið válynd og ólíklegt að tíkin sé enn á lífi - þó gæti hún hafa álpast heim á
einhvern bæ eða einhver tekið hana í hús. Þeir sem kynnu að hafa orðið Kríu varir eða vita eitthvað um örlög hennar eru
vinsamlegast beðnir að hringja sem fyrst í síma 867 1000 og láta vita.