04. febrúar, 2008 - 15:42
Fréttir
Góðtemplarareglan á Akureyri afhenti í dag Sjúkrahúsinu á Akureyri 50 milljónir króna að gjöf til stofnunar á
sérstökum sjóði sem varið verður til kaupa á tækjum og búnaði til greiningar og meðferðar hjartasjúkdóma á FSA.
Fram kom í máli Halldórs Jónssonar forstjóra FSA við þetta tækifæri að hér væri um ræða eina af stærstu ef
ekki stærstu gjöf sem sjúkrahúsið hefur fengið frá upphafi. Það var Árni Valur Viggósson, stjórnarformaður
Góðtemplarareglunnar á Akureyri, sem afhenti gjöfina.
Góðtemplarareglan á Akureyri var stofnuð 10. janúar 1884 á heimili Friðbjörns Steinssonar bóksala Aðalstræti 46 á Akureyri.
Stúkustarf í bænum var með miklum blóma í á annað hundrað ár og var það undirstaða forvarna- og mannúðarstarfs sem
og menningar- og listastarfsemi í bæjarfélaginu um langt árabil. Til að standa straum af umfangsmiklu starfi sínu stofnuðu stúkurnar til ýmis
konar fyrirtækjareksturs og byggðu stórhýsi undir starfsemina. Þau setja enn þann í dag sterkan svip á bæjarmyndina og má þar
nefna Samkomuhúsið, Skjaldborg og Borgarbíó. Þá áttu og ráku stúkurnar einnig Hótel Varðborg um langt skeið. Nýjar
leiðir og áherslur ráða nú ferðinni á því sviði sem Góðtemplarareglan starfaði. Fyrirtæki hennar og hús hafa
verið seld og hluti andvirðis þeirra verið notaður til að gera upp Friðbjarnarhús við Aðalstræti. Þar hafa stúkurnar komið upp
safni yfir hið merkilega starf sitt og er nú verið að leggja lokahönd á enduruppbyggingu þess. Þeir fjármunir sem eftir eru af tæplega 125
ára starfi Góðtemplarareglunnar á Akureyri hafa nú verið afhentir Sjúkrahúsinu á Akureyri.